Sarpur fyrir 12. júní, 2009

söngvaseiður

var að koma af Sándofmjúsík sýningu, mikið er þetta skemmtileg uppsetning! Hefði getað setið gegn um hana aftur. Takk fyrir mig, Hallveig, Vala og þið hin öll. (hmm, ætti ég frekar að segja takk fyrir mig Væla og Vala?)

Dagur 5 – Olomouc

Byrjaði á skokki og sturtu og svo vorum við Jón Lárus með tveggja manna skemmtiþátt í morgunmatnum, fyrst kom hann fram í úthverfum bolnum og aðeins síðar missti ég morgunmatarpylsu ofan í Nutellakrukkuna (nutellahjúpuð smápylsa, mmmm)!

Gekk annars ótrúlega vel að smala köttunum í þetta skiptið, öll herbergislyklakort innheimtust, reyndar eftir talsvert japl, jaml og fuður. Hirtum vegabréfin, þau höfðu öll verið geymd í móttökunni, vorum ekkert að dreifa þeim strax, þar sem við vissum ekki hvort hótelið í Olomouc myndi heimta sama.

Náðum að leggja af stað í góðum tíma á stefnumótið við rútuna, eitthvað smotterí á leiðinni, einn hælsærisplástur og ein þurfti að skipta um skó en annars bara eins og smurt. Þegar Grétar hringdi í Jónsa til að tékka á stöðunni á hópnum varð hann steinhissa þegar hann heyrði að við værum öll komin á mótsstað, allar töskur vísar og allt saman. Ekki sem verst.



Hlóðum bílinn á mettíma og svo var Prag kvödd með virktum. 300 kílómetra ferð til Olomouc, dágóður spotti þar, las á leiðinni, langt komin með Wallanderbókina.

Keyrðum að Slovenský Dúm (Slóvenska húsinu) þar sem keppnisskrifstofur voru til húsa, hittum hana Šárku sem átti að sjá um okkur allan tímann (og gerði með glæsibrag)

Hún fór með okkur inn á hótelið okkar, þar tók við niðurröðun í herbergi, það er flóknara en að segja, þegar um svona hóp er að ræða. Jónsi fór afsíðis ásamt tveimur þeirra elstu til að púsla, það tók alveg góða stund en leystist að lokum og ég held allir hafi verið sáttir. Við Jón Lárus settumst niður og skrifuðum öll vegabréfanúmerin ásamt fæðingardegi og ári, tengt herbergjunum, þetta þurfti fyrir hótelið. Tók alveg slatta tíma. Ætluðum að dreifa pössunum en það tókst ekki sérlega vel, á okkar hæð var nákvæmlega ein kórstúlka inni, allar hinar dreifðar út um alla vinda (kettir, jámm).

Netið á hótelinu virkaði fínt, það var ekkert sérlega fúlt að uppgötva það.

Stuttur göngutúr út frá hótelinu, sáum skrítnar rauðar pöddur sem við vitum ekkert hverjar eru:

pöddur

Fréttum af því að einhver í kórnum hefði tekið heila lúku af þessum pöddum, man ekki hver – og ekki hefði ég lagt í það…

Kvöldmatur á Skoska píparanum (Scottish Piper (já ég veit að Piper þýðir ekki pípari)), við áttum eftir að kynnast þeim stað betur í ferðinni. Sáum ekki betur en að börnin gleyptu í sig matinn með bestu lyst.

Skyldu snemmíhátt, langur dagur í vændum.

ekki gekk

þetta í þetta skiptið.

Reynum aftur á mánudaginn (og þá væntanlega fram á þriðjudag, meira vesen en við héldum). Fleiri krossaða putta takk…


bland í poka

teljari

  • 380.722 heimsóknir

dagatal

júní 2009
S M F V F F S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930  

sagan endalausa