Sarpur fyrir febrúar, 2005

aldrei hélt ég að ég myndi lenda í þessu! ég er k…

aldrei hélt ég að ég myndi lenda í þessu!

ég er komin í einkaþjálfarahlutverk fyrir manninn minn. Hann er í Líkami fyrir lífið átaki í vinnunni hjá sér, nýkominn þessi líka fíni líkamsræktarsalur. Jón Lárus er í fínu formi, hleypur mikið og spilar fótbolta en hann hefur aldrei prófað að lyfta. Þannig að þegar þetta átak var sett af stað í vinnunni, sló hann til.

Bara fínt, nema það vantar algerlega inn í þetta teygjurnar. Ekki einu sinni teygjuplakat uppi á vegg. Þannig að þegar hann kom heim eftir fyrsta skipti, spurði ég hann hvort hann hefði nú ekki teygt vel. Svarið var: uuuu… Ég spurði hvort hann hefði teygt eitthvað. Sama svar. Ég spurði hvað hann héldi eiginlega að hann væri að gera! Rak hann í hörku teygjuprógramm, held að ég hafi bjargað lífi hans næstu daga með þessu.

Einn í vinnunni varð að fara heim aftur í dag, hann gat ekki unnið vegna kvala af harðsperrum…

OBITUARY Today we mourn the passing of our belov…

OBITUARY

Today we mourn the passing of our beloved old friend, Mr. Common Sense.

Mr. Sense had been with us for many years. No one knows for sure how old he was since his birth records were long ago lost in Bureaucratic RedTape. He will be remembered as having cultivated such value lessons as knowing when to come in out of the rain, why the early bird gets the worm and that life isn’t always fair.

Common Sense lived by simple, sound financial policies (don’t spend more than you earn) and reliable parenting strategies (adults, not kids, are in charge). His health began to rapidly deteriorate when well intentioned but overbearing regulations were set in place. – Reports of a six-year-old boy charged with sexual harassment for kissing a classmate; teens suspended from school for using mouthwash after lunch, and a teacher fired for reprimanding an unruly student, only worsened his condition. Mr. Sense declined even further when schools were required to get parental consent to administer aspirin to a student; but could not inform the parents when a student became pregnant and wanted to have an abortion.

Finally, Common Sense lost the will to live as the churches became businesses; and criminals received better treatment than their victims. Common Sense finally gave up the ghost after a woman failed to realize that a steaming cup of coffee was hot, she spilled a bit in her lap, and was awarded a huge settlement. Common Sense was preceded in death by his parents, Truth and Trust, his wife, Discretion, his daughter, Responsibility, and his son, Reason. He is survived by two stepbrothers, My Rights and Ima Whiner. Not many attended his funeral because so few realized he was gone.

If you still remember him, pass this on; if not, join the majority and do nothing.

(frá Eyva þangað frá Iðunni sem aftur veiddi það annars staðar, veit ekki hver á þetta upphaflega)

Við Finnur erum komin með magapest, ekki gaman. A…

Við Finnur erum komin með magapest, ekki gaman. Annars veit ég ekki hvað það er með drenginn, hann gubbar á sirka tveggja vikna fresti, eina gusu, eiturhress á eftir, heima einn dag, ekkert að honum. Þetta er held ég fjórða eða fimmta svoleiðis tilfellið, síðast var það nóttina fyrir öskudag, eins og minnuga lesendur kannski rámar í.

En kannski er þetta önnur pest núna, ég er amk líka lasin í þetta skiptið…

matarboð tókst um það bil fullkomlega, forréttur ú…

matarboð tókst um það bil fullkomlega, forréttur úr nýju fiskbók Hagkaupa, bara fínt, of mikill laukur samt, á eftir að aðlaga hann okkar smekk, verði hann endurtekinn. Sveskjusvínið (Porc aux pruneaux) tókst fullkomlega í þetta sinn, nóg eftir líka fyrir matinn annað kvöld. Snilld. Og svo var súkkulaðikakan frá henni Hallveigu fullkomin að venju, bara með þeyttum rjóma og jarðarberjum. Buðum upp á Tokaji desertvín með kökunni, hugsa nú samt að ef Hallveig hefði verið á svæðinu hefðum við ekki sloppið við að hafa kaffi líka…

Yngri krakkarnir spiluðu fyrir matargestina við góðar undirtektir. Fífa sleppti því í þetta sinn. Freyja vildi hins vegar bæði spila og dansa; fékk að sjálfsögðu leyfi til þess. Ekki sviðsfeimin, stúlkan sú.

ég ætlaði sko ekki að vera til fimm, nei nei! ég?…

ég ætlaði sko ekki að vera til fimm, nei nei! ég? Að sjálfsögðu komum við heim klukkan fimm. Langt síðan maður hefur haft svona mikið úthald.

Kjúklingavængirnir voru fínir, geri þetta örugglega aftur einhvern tímann. Verð að kaupa þessa ananaschilisósu aftur, hún gefur ansi gott bragð.

Svo er bara að koma sér í stuð til að elda, ekki aaalveg upp á okkar besta…

ó nei! missti af þessum tónleikum. Hafði ekki hu…

ó nei!

missti af þessum tónleikum. Hafði ekki hugmynd um að þeir væru í dag. Sorrí Tryggvi, ætlaði þvílíkt að mæta. Var þetta tekið upp? plís?

Búin að grilla kjúklingavængi fyrir partíið í kvöl…

Búin að grilla kjúklingavængi fyrir partíið í kvöld, henti saman barbíkjötsósu, sojasósu, púðursykri og smáræði af ananas- og chilisósu sem ég átti inni í skáp. Ilmar amk afskaplega vel, tilkynnist á morgun hvernig útkoman varð.

Já, eins gott að borga óperumiðana, svo við missum ekki afsláttinn, úff. Farin.

Kórpartí annað kvöld, snilld. Verst að við erum b…

Kórpartí annað kvöld, snilld. Verst að við erum búin að bjóða fólki í mat á sunnudagskvöldið þannig að við verðum varla til 5 eins og stundum…

Snilldarinnar veður, svolítið svalt þó. Fór með v…

Snilldarinnar veður, svolítið svalt þó. Fór með vinkonu minni út að borða, töltum niður í bæ heiman frá mér. Fórum í Iðuhúsið, fengum þokkalegasta salat. Var reyndar eiginlega jafnsvöng eftir og fyrir. Kom upp úr kafinu að hún hefur aldrei borðað á Kaffibrennslunni, ákváðum að fara þangað næst.

Strákurinn hennar á að fermast eftir 3 vikur og hún var að tala um hvað þetta væri orðin mikil bilun. Allt þetta dæmi í kring um fermingar. Sagðist vera þessi ósköp fegin að hann vill ekki sjá sérprentaðar servíettur né boðskort (settist niður um síðustu helgi og hringdi í þá sem átti að bjóða), veislan verður haldin heima og heimagerðar veitingar. Svona myndi ég helst vilja gera þetta, ef krakkarnir mínir vilja fermast.

amk ekki að ræða það að senda liðið í strípur, plokkun, augnháralitun og ljós!

Flensborgarkórverkið á leið til stjórnanda, gott m…

Flensborgarkórverkið á leið til stjórnanda, gott mál. Ætla samt ekki að skála fyrir því, ekki nammidagur í dag 😦

sótti Skype áðan en veit ekkert hvort ég geti nota…

sótti Skype áðan en veit ekkert hvort ég geti notað það, ég held að það sé nebbnilega ekki míkrófónn á Cube. Hmmm. Hlýt að geta fengið svoleiðis, ekki viss samt, verður að vera usb, ekkert audio in á henni. Eini gallinn við þessa tölvu…

stóra skutlið klikkaði, ég fór með Finn í tímann í…

stóra skutlið klikkaði, ég fór með Finn í tímann í stað pabba hans, vorum örlítið fram yfir tímann; ég kom svolítið seint að sækja Freyju í skólann, fann hana hvergi, hélt hún hefði farið heim, engin Freyja þar, hringdi í allar vinkonur, hvergi Freyja, ég orðin dauðstressuð, skildi ekki hvers vegna hún hefði ekki farið heiim til bestu vinkonu sinnar, eða þá til vinar síns sem á heima hér í bakhúsinu, en þá var hún bara enn í skólanum og beið eftir mér, greyið. Missti af dansinum og ég þá af ræktinni. Svona þegar rútínan riðlast.

Vorboðinn ljúfi mættur götusóparabíllinn kominn í…

Vorboðinn ljúfi mættur

götusóparabíllinn kominn í gang.

Er að leggja lokahönd á kórverk fyrir Flensborgark…

Er að leggja lokahönd á kórverk fyrir Flensborgarkórinn, ógurlegt draugastykki. Svo er að reyna að klára dúett númer 2, hann verður nokkurn veginn strófískur, 7 vísur um heilbrigð hjón. Þá bara Vídalínsmessan aftur, nóg að gera, sko 🙂 Er örugglega líka að gleyma einhverju – já, lag fyrir Kvennakór Hafnarfjarðar líka og svo fleiri útsetningar. Vissi það.

Það er flókið að vera bara á einum bíl. Fimmtudag…

Það er flókið að vera bara á einum bíl.

Fimmtudagarnir eru verstir. Þá þarf Jón Lárus að hafa drossíuna þar sem hann fer með litla gutta í víólutíma klukkan kortér yfir tvö. Þegar hann er búinn er brunað með stráksa aftur í leikskólann, Freyja sótt í skólann, ég hingað heim, Jóni skutlað aftur í vinnuna, ég og Freyja inn í Sporthús þar sem hún er í jassballett og ég í ræktinni á meðan. Að því loknu sækjum við Freyja Finn aftur í leikskólann, skutlum Fífu í kór inn í Langholtskirkju (þessum lið mætti reyndar sleppa, Fífa getur alveg tekið strætó, en þetta er bara alveg í leiðinni) og að síðustu sækja Jón í vinnuna.

Á morgun flækist málið enn frekar þar sem ég á að mæta á kennarafund í Suzukiskólanum klukkan 9, á sama tíma og Finnur mætir í leikskólann. Ég er ekki enn búin að finna út úr því hvernig við leysum þetta. Leigubíll, trúlega…

tek undir með litla bróður, þessi grein hans Hnakk…

tek undir með litla bróður, þessi grein hans Hnakkusar er tóm snilld!

Páskaliljurnar farnar að stinga upp kollunum í gar…

Páskaliljurnar farnar að stinga upp kollunum í garðinum, athuga hvort öllu sé óhætt. Mikið væri nú gaman ef það kæmi ekkert illilegt kuldakast og við fáum blómstrandi páskaliljur í dymbilvikunni eða svo

já já, maður má nú láta sig dreyma…

undarlegt veðurfar, þoka og logn í þrjá daga samfl…

undarlegt veðurfar, þoka og logn í þrjá daga samfleytt hér í hovedstaden. Komin skán á Tjörnina, þrátt fyrir að það sé nú varla frost, bara engin hreyfing á vatninu til að hindra ísmyndun.

Þriggja tíma þjóðdansamaraþon hjá mér í dag, geri aðrir betur. Sama á morgun, ég þarf ekki að hafa samviskubit yfir hreyfingarleysi þessa vikuna.

tveir nýir tenglar, hún Kibba og svo Helga kollegi…

tveir nýir tenglar, hún Kibba og svo Helga kollegi fyrir norðan.

mikið voðalega hrúgast launamiðarnir hér inn. Ég …

mikið voðalega hrúgast launamiðarnir hér inn. Ég held alltaf að nú hljóti ég að vera búin að fá þann síðasta. Endurskoðandinn minn fær slatta að blaða í…


bland í poka

teljari

  • 377.779 heimsóknir

dagatal

febrúar 2005
S M F V F F S
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728  

sagan endalausa