Þegar ég var í tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík hér forðum daga (úff hvað mig langar ekki að rifja upp hvað er langt síðan) voru bæði Þorvaldur Bjarni og Eyþór Arnalds með mér í tónsmíðabekknum (ásamt fleirum auðvitað). Þannig að ég var sjálfskrifaður Todmobileaðdáandi eiginlega frá því áður en grúppan var stofnuð.
Í kvöld, loksins, fékk ég svo að troða upp með bandinu, fyrsta skipti ever sem Todmobile hefur haft kór á tónleikum. Komum fram í fimm lögum af um 20, hrikalega skemmtilegt, stemningin í Eldborg ólýsanleg. Þetta verður sko ekki í síðasta skipti, pant Hljómeyki vera áskriftarkór!
Nú erum við annars búin að syngja bæði með Sólstöfum og Todmobile á innan við ári. Stefnubreyting? Nei fjölhæfni…
Ég á einhversstaðar nótur af Plastic people:
haha já
Það er víst ekki hægt að neita því að Hljómeyki er fjölhæfur kór. 😀
það er reyndar eiginlega efni í næstu færslu :þ
Spandau Ballet hljómur í þessu. Fyrir utan kórinn að sjálfsögðu, hann er one of a kind.