meira mont

já kemur í bunum þessa dagana…

Um daginn fékk ég vinabeiðni frá útlendingi á smettinu. Ég smellti bara á samþykkja eins og ég geri nánast alltaf (hendi síðan út aftur ef mér líst ekki á viðkomandi við skoðun eða ef statusar eru eitthvað rugl).

Sé síðan að viðkomandi setur stöðuna: @101 Reykjavík. Læktakkinn fer í notkun.

Síðan fæ ég skilaboð:

Hello! I teach at the Clive Davis Institute of Recorded Music, New York University and I am a fan of your music, as is my friend and colleague Matthew Barton, Curator of Recorded Sound at the Library of Congress. We presented some recordings of your choral works to my students last term. I am in Reykjavík for a couple of days and would love to see the Academy if it is open. Do you know if that would be possible?
Cheers,

Ég svara sem er að skólinn sé búinn í bili, eitthvað sé nú væntanlega í gangi samt en hins vegar sé húsið sérstaklega lítið spennandi að sjá, vonandi vinnan sem þar fari fram betri.

Maðurinn spyr þá hvort ég sé til í að hitta hann yfir kaffibolla daginn eftir, ég er vel til í það og sting upp á Mokka klukkan 3.

Á Mokka reynist hins vegar allt vera troðfullt, við löbbum niður á Laugaveg, fyrst í Smekkleysubúðina þar sem við hittum á Ása sjálfan, fínt spjall og keyptir örugglega 20 diskar af alls konar íslenskri tónlist. (já maðurinn er semsagt líka með útvarpsþátt þarna í Nefjork)

Allavega yfir súkkulaðibollanum á 10 dropum segir hann mér af því að hann hafi fengið téðan Matthew til að halda fyrirlestur í kúrsinum sínum. Sá hafi komið með heilmikið af músík og meðal annars hafi hann dregið upp disk og sagt: Ég ætla að leyfa ykkur að heyra lag eftir tónskáld sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, íslending sem heitir Hildigunnur Rúnarsdóttir. Minn maður hváir – haa? hún er líka uppáhalds hjá mér…

míns ennþá gapandi – en greinilega er músíkin mín farin að heyrast vestanhafs. Ekki slæmt, ekki slæmt!

11 Responses to “meira mont”


  1. 2 baun 2011-07-1 kl. 13:13

    Til hamingju, þetta er skemmtilegt!

  2. 3 Hafdis 2011-07-1 kl. 20:31

    YEY ! Hildigunnur !!

  3. 4 Svanfríður 2011-07-2 kl. 04:07

    Glæsilegt! Þetta var gaman að lesa:) Hróður þinn fer víða og það er gott.

  4. 6 Svala 2011-07-2 kl. 17:58

    Til hamingju. Næsta stopp: heimsfrægðin. 🙂

  5. 8 Eva Hauksdottir 2011-07-4 kl. 08:34

    Bara frábært! Til hamingju.

  6. 9 Bryndís Baldvinsd. 2011-07-5 kl. 21:51

    Snilld 🙂

  7. 10 Kristín Björg 2011-07-12 kl. 14:42

    Glæsilegt!

  8. 11 parisardaman 2011-07-25 kl. 15:33

    Frábært!


Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s




bland í poka

teljari

  • 377.779 heimsóknir

dagatal

júlí 2011
S M F V F F S
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

sagan endalausa


%d bloggurum líkar þetta: