gekk rennslið bara hörkuvel, ruglaðist tvisvar pínu á texta, kom ekki að sök, tvær rammvitlausar stöður (lagast næst), og svo er ég ekki alveg nógu mikil nunna í mér til að halda höndunum inni í búningnum. Já og svo einu sinni kom ég svolítið seint inn en það skrifast á sýningarstjóra sem var líka ný í starfi í dag. Kom heldur ekki illilega að sök.
Hrikalega skemmtilegt!
(mynd rænt af midi.is)
Verðurðu 11. september? Við erum að fara þá, ég get veifað þér úr salnum 😉
Dauðöfunda þig, hef séð Söngvaseið (myndina)örugglega 100 sinnum. Gangi þér vel og njóttu. Kærust í kotið, Gulla Hestnes
Eyja, nei, ég byrja ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok september, fer eftir hvernig æfingatímabilið í Óperunni verður – þau eru ekki búin að fá það í hendur. Þú bara veifar Vælunni í staðinn 😀
Gulla, takk, já þetta er bara skemmtilegt.
Ertu ekki alveg nógu pen 😉 ?
nei, greinilega ekki 😀