ég er ekki inni á top wordpress blogs today! Hvað á þetta nú að þýða? Allir hættir að lesa?
Það sem verra er að þrjú af fjórum eru átaksblogg, eitthvað ddv og léttara líf og þannig. Ég harðneita samt að fara að gera þetta að átaksbloggi…
(ekki að mér veitti af að pæla í línum en ég mun ekki þreyta lesendur mína kæra með fréttum af slíku – þegar ég drattast í gang)
Ég er að lesa 🙂 Og hver nennir að lesa átaksblogg???
jájá, þetta var skárra, komin í annað sæti 😀
Segi það annars með þér! Svo sem allt í lagi að minnast á að maður hafi tapað einhverju, en afskaplega óspennandi að hafa slíkt sem aðalumfjöllunarefni bloggsins. Fínt að nota bloggið sem tæki og aðhald, bara ekki biðja mig um að lesa…
ég held að átaksbloggarar nenni að lesa bloggin hjá hver öðrum
já, örugglega en hvað eru þeir eiginlega margir? Til að slá MIG út 😮 😉
þú ert hætt að birtast á mikkavefnum mínum.. það hefur nú örugglega sitt að segja 😉
já, ég sé! Hvað er með Mikka, eiginlega? Þarf að tékka á þessu…
Reyndar get ég ekki kvartað yfir aðsókn almennt, setti tildæmis glæsilegt nýtt heimsmet (509 innlit) tveimur dögum fyrir kvörtunina.
hananú, þar datt Mikki inn aftur. Skrítið.