Fórum á markað og fengum kast, keyptum slatta af dóti. Og ég sem finn yfirleitt aldrei neitt á svona mörkuðum. Var samt súr yfir að það skyldi ekki vera neinn matarmarkaður, bara föt og dót.
Finni tókst að verða bílveikur bæði á leiðinni þangað og til baka (keypti á hann flottar nýjar stuttbuxur, gat ekki látið barnið ganga í útældum buxum, ræfilinn – fór ekki á hausinn, þær kostuðu 2 evrur). Hann á alls ekki vanda til að verða bílveikur, en þessar hæðir, hólar og beygjur fóru ekki sérlega vel í greyið.
Á leiðinni til baka í húsið, renndum við til Smerillo og tókum út veitingastað sem okkur hafði verið bent á. Smástund að finna innganginn en þegar inn var komið leist okkur ekki smá vel á. Pöntuðum fyrir alla á föstudagskvöldinu.
Heim í hús. Jón Lárus tók skokktúr dauðans (alveg upp í 20% halla, hann segir sjálfur frá hérna). Veiddist næststærsta vespan sem við sáum í ferðinni (já, við sáum eina stærri – OG ógeðslegri)
Annars var það bara sólbað og laug, fórum síðan nokkur á veitingastað rétt fyrir utan Comunanza, þjónninn ætlaði ekki að átta sig á þessum barbörum sem vildu sumir fá primo piatto og aðrir secondo piatto og allt átti þetta að koma í einu. Tókst þó á endanum. Maturinn snilld og ekki síðri var anísbrennivínsnafs sem eigandinn gaf okkur, hans eigin framleiðsla, í boði hússins í lokin. Algjört sælgæti, gaf okkur meira að segja restina úr flöskunni með upp í hús.
Kvöldstemning að vanda:
Þessi fluga er þvílíkur viðbjóður. Ég held ég hafi misst matarlystina (er að borða brauð).
hehe, úff! Sjáðu þá þessa mynd af henni… 😀
var þetta eina myndin sem var tekin af Finni í þessum buxum? Hann er ekki í neitt sérlega skemmtilegri stellingu á henni 😉
nei, ein önnur, en stellingin truflar mig nú ekki mikið, bara saklaus lítill strákur sem þarf líklega að pissa… 😀
ég veit það sosum alveg, hún truflar mig nú heldur ekki, fannst þetta bara skondið 😀
jámm, ég var reyndar búin að taka eftir þessu 😉
Grrr. Já þetta skrímsli eyðilagði bjórinn minn!
já, en við vorum náttúrlega ekki hér heima, nógur bjór í ísskápnum og kostaði ekki 300 kall stykkið…