Sarpur fyrir 10. mars, 2007

hér er ég aftur

ekki alveg búin að ákveða hvort ég svissa hingað, en gerir ekkert til að eiga síðuna. Helst vildi ég geta fært allt draslið hingað frá blogspot, ég ætla nú ekkert að loka henni neitt, þykir svo sem voða vænt um gömlu síðuna. Þetta kommentadót var bara gersamlega að fara með mig.

Kem til með að mjaka útlitinu í mitt horf eins og ég get með mína takmörkuðu kunnáttu í html.

svör

ekkert skánar bannsett kerfið, ég er svo bæði búin að reyna að henda blogger kerfinu inn (birtist ekki) og halló’skan (virðist vera með síðuna í einhvers konar millibilsástandi þannig að innsetning virkar ekki, þarf annaðhvort að vera á gamla blogger eða búin að færa yfir í nýja útlitið í nýja blogger (hvað ég vil ekki)). Spurning hvort maður á að gerast drastískur og fara alla leið yfir í wordpress? Ætla nú ekki að setja upp eigin server samt þó tölvan ráði fyllilega við það, ég kann engan veginn nóg til þess.

En semsagt, get ekki svarað neinum kommentum í glugganum þannig að hér kemur:
Finni gekk ljómandi vel að spila, takk Svanfríður
Kristín, jú, auðvitað á maður alltaf að stefna aðeins hærra en börnin geta, þetta lag er bara svolítið mikið stökk.
Syngibjörg og Anna Jonna, tónleikarnir með Carmina Burana verða þann 25. mars, klukkan 17.00 og 20.00 í Langholtskirkju.
Arnar, nei, heldurðu að ég hafi nokkuð fattað það 😀 Og Kalli, klárt, aldrei nokkurn tímann kaupa ódýr vín á veitingastað!

(er ég að gleyma einhverjum? Ekki það að þið getið svarað mér. Grrrr)

jamm, fór ekki nógu neðarlega. Jú, Þorbjörn, tennisspaðar og boltar verða algjört möst í sumar. Jafnvel frá Slazenger.


bland í poka

teljari

  • 380.650 heimsóknir

dagatal

mars 2007
S M F V F F S
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

sagan endalausa