urr, súkkulaðikakan mín féll. Allt Birni Friðgeiri að kenna 😉
nei annars, það er ofninn minn sem er sökudólgurinn. Ekki nokkur leið að stilla hitann almennilega, sveiflast upp og niður eins og ónefndar óperusöngkonur með skjálftavirkni í toppi. Þetta gerir útslagið, ný eldavél hér inn, ekki síðar en í haust. Langar í gas en það er trúlega of flókið hjá okkur.
kakan verður nú samt góð, ég sneið hana til og lyfti upp miðjunni. Nánari fréttir eftir afmæli.
0 Responses to “urr, súkkulaðikakan mín féll. Allt Birni Friðgeir…”