Gettu betur byrjað í sjónvarpinu og þar með þessi óþolandi endalausu hálfvitalegu fögn hjá stuðningsliðunum. Skora á Egilsstaðaliðið að halda aftur af látunum þannig að þátturinn verði amk þolanlegur þar.
Sarpur fyrir 9. febrúar, 2005
Krakkarnir sitja niðri, horfa á barnatímann og getið nú hvað… nammi? naah? er það nokkuð?
en stelpurnar voða góðar og gefa bróður sínum með sér. Mesta furða hvað hann hefur góða lyst.
Og naumast hvað snjóar! hitinn í gangstéttinni hefur ekki alveg undan en munar samt hellingi.
Eldri heimasætan mætt heim með fenginn af Laugavegi: yfir 800 grömm af nammi…
verður gaman að vita hvað sú yngri dregur heim!
kom að því
lasin. Finnur vaknaði í nótt og ældi út rúmið, ég er ekki heldur alveg góð í maganum. Súrt, sérstaklega fyrir litla Spædermanninn minn sem missir af öskudagsballinu í leikskólanum. Er að vandræðast með krakkaræflana mína í Hafnarfirði, sem tóku upprifjunarpróf í síðustu viku, áttu að fá þau til baka í dag til að vita hvað þau ættu að læra fyrir aðalprófið í næstu viku. Verið að reyna að redda málunum fyrir þau. Ætlaði líka að láta þau fá lista yfir ítölsku orðin sem þau þyrftu að læra, svo þau þurfi ekki að leggja á minnið 3 heilar blaðsíður. Nóg samt.
Nýlegar athugasemdir