hér kem ég. Og við öll í Hljómeyki og gott betur.
Tónleikar með verkum Atla Ingólfssonar og Þuríðar Jónsdóttur á fimmtudagskvöldið klukkan 8, tónleikar sem ég veit ekki mikið um á föstudagskvöldinu, líka klukkan 8, (,,The Jörgen Jörgensen travelling show”
kammertónlist frá tímum ríkis Jörundar hundadagakonungs eftir Rossini, Haydn, Boccherini o.fl 200 ár eru síðan hann ríkti við Austurstrætið í Reykjavík). Händel og Haydn tónleikar á laugardeginum klukkan 3 og 5, mæli sérstaklega með þeim klukkan 5, skosk þjóðlög í útsetningu Haydns. En klárt, auðvitað mætir maður á báða tónleikana á laugardeginum, kominn uppeftir og alltsaman.
Svo endurtökum við Dixit Dominus síðan í janúar, ég held það verði bara ennþá betra en þá, og tókst það þó alveg ljómandi vel, full Neskirkja. Verður mjög spennandi að heyra þetta í Skálholtskirkju. Þeir tónleikar eru klukkan 5.
En klára að pakka…






Eini möguleikinn fyrir mig er fimmtudagurinn, og þó, kannski föstudagurinn, ekki víst. En helgin er pökkuð í afmæli og vinnu.
Kíktu endilega á fimmtudaginn, væri ógurlega gaman að sjá þig
Já, í alvöru, ég ætla að reyna að koma. Mig langar svo mikið að sjá Hljómeyki spila. Ekki verður stórafmæli hér heima með tilheyrandi uppákomu ykkar, það var góðærisplan hjá mér, he he.
Hlökkum til að sjá þig. Átt bara inni gróðærisafmælið hjá okkur…