orðinn menntaskólanemi, farin af stað að ná í stundatöfluna sína, mömmunni harðbannað að keyra hana þangað, hvað þá meira. Hjólaði, fínt, náttúrlega – meðan veðrið er þokkalegt er um að gera að nota hjólið.
Verður spennandi að sjá töfluna. Svo þarf hún væntanlega að funda í sambandi við hvað tónlistarnámið nýtist henni til eininga.






Frábært
Gaman.
Auðvitað máttir þú ekki koma með. Ekki séns að ég hefði tekið mútter með á mínum sokkabandsárum.
Nei, maður fór sko sjálfur í Menntó, ekkert mamma að halda í hendina á manni neitt.
nei, klárt, enda spurði ég nú meira að þessu til að stríða henni en neitt annað
Mömmur eiga ekkert erindi með í svona…