að syngja eða spila á menningarnótt (ekki það, við höfum ekki sóst eftir því, svo sem, enda hvorki Hljómeyki né SÁ starfandi síðsumars). Hins vegar er yngri dóttirin að fara að performera. Á örugglega eftir að auglýsa nánar hér hvað og hvenær – svona þegar ég veit meira sjálf.
Eina sem ég veit er að þetta er Hattarasöngurinn, sem hún og vinkonur hennar + einhverjir fleiri krakkar æfðu upp í fyrravetur hjá honum Pétri Hafþóri tónmenntakennara í Austurbæjarskóla, fluttu á ýmsum skemmtunum og við hin og þessi tækifæri. Foreldrum var hins vegar aldrei boðið, þannig að ég hef aldrei séð þetta. Pétur fékk svo íslensku menntaverðlaunin, meðal annars fyrir þetta, svo ég er ógurlega spennt að sjá og heyra.






Já, þetta verður spennandi að sjá.