Ekki byrjaði dagurinn

nú vel.

Hringt í mig klukkan rétt fyrir sex í morgun. Your wake-up call!

Ég: Uhh, Ahh, Hmm???

Lagt á.

Og ég sem gat ekki einu sinni stunið upp úr mér að ég hefði alls ekki beðið um vakningu. Vona að sá/sú í næsta herbergi fyrir ofan/við hliðina hafi ekki misst af neinni flugvél eða lest út af því að það var hringt í mig í stað þeirra.

Nú, fyrir utan þetta er dagurinn búinn að vera afskaplega góður og nýtur. Mætti í frekar shabby hliðarsal í Óperunni þar sem fyrirlestur Þorkels, Þorgerðar og Hamrahlíðarkórsins: Meet Iceland, fór fram. (þegar ég kem myndavélinni í samband við tölvuna mun ég sýna myndir af “kórpöllunum” sem þau þurftu að notast við). Settist þar niður, fékk bækurnar sem krakkarnir höfðu borið fyrir mig (hmm, einhverjir hafa nú reyndar gleymt bókum heima, vantar smá), fór að pota inn í þær diskunum með tóndæmunum. Hún Hafdís hafði lofað að koma og aðstoða mig, ég hélt að ég gæti örugglega keypt fyrir hana aðgang að stökum fyrirlestrum, þegar hún mætti reyndi ég það en nei, þurfti að kaupa allan daginn fyrir hana. 900 danskar krónur. Úff. En það var gert og reyndist hún betri en enginn. Raðaði í bækur eins og herforingi, en þar sem klukkan var orðin ansi nálægt tíu (fyrirlesturinn hófst þá), voru kórkrakkar og fararstjórar virkjaðir líka.

Komum út nær 300 bókum og diskum bara á þessum fyrirlestri, hreint ekki slæmt. Takk fyrir hjálpina, allir.

Fyrirlesturinn var flottur, Þorkell kynnti íslenska kórtónlist frá miðöldum og upp úr, krakkarnir sungu eins og englar undir styrkri stjórn Þorgerðar.

Eftirá skiluðum við bókum inn á hótel og ég bauð Hafdísi í mat á risnureikningi (hehe, ætli maður sé nú merkilegur), fengum okkur pizzu og salat og gos, fórum síðan á snilldar hádegistónleika í Óperunni.

Eftir það fór Hafdís heim en ég hélt áfram að vinna, fór upp á fjórðu hæð þar sem sölu- og kynningarbásarnir eru. Hafði skilið allar bækurnar eftir á hótelinu sem reyndist mistök (þó ekki óafturkræf), sumir básarnir voru frá stórum kórum, eins og kór heilags Ólafs, þau vildu ólm fá bæklinga, einn eða tveir aðrir líka. Reddast á morgun. Talaði við yfirmann báss finnsku tónverkamiðstöðvarinnar, þar fæ ég að skilja bunkana mína eftir, ef ég næ ekki að koma bókunum öllum út. Snilld.

Kom mér upp á hótel í langþráða sturtu (náði því ekki í morgun) og ætti núna eiginlega að vera að fara á tónleika, en ég hugsa að ég leggi mig frekar í smástund og fari síðan á tónleikana hjá Hamrahlíðarkórnum á eftir, meiri vinna, jámm.

5 Responses to “Ekki byrjaði dagurinn”


  1. 1 Þorbjörn 2008-07-20 klukkan 18:12

    Hva, náðirðu ekki í sturtu í morgun þó þú hafir verið vakin fyrir klukkan sex?

  2. 2 hildigunnur 2008-07-20 klukkan 21:43

    hehe, heldurðu virkilega að ég hafi ekki sofnað aftur? Síminn minn var stilltur á hálfátta en ég nennti ómögulega að vakna fyrr en átta. Tók svo strætó rúmlega hálfníu, þannig að nibb, engin sturta…

  3. 3 hildigunnur 2008-07-20 klukkan 21:44

    Sem minnir mig á: Stilla vekjarann á símanum!

  4. 4 Hafdís 2008-07-23 klukkan 08:51

    “Raðaði í bækur eins og herforingi” lesist sem: “Byrjaði að raða vitlausum diskum í vitlausar bækur, þurfti að rífa þá út úr aftur og setja þá í réttar bækur” :p. Hihihi…

  5. 5 hildigunnur 2008-07-23 klukkan 17:11

    Hehe, herforingjar gera líka stundum smá mistök :D


Skildu eftir svar




bland í poka

marblettur

hausttonleikaplakat2009

frystiskápshorn

hilla yfir þvottavélum og frysti

séð fram að dyrum

hálfmálað inn í skorsteinshorn

More Photos

Nýleg ummæli

Meinhornid við langferðastrætó
hofilius við litli guttinn
Kristín í París við guttarnir
Harpa J við guttarnir
Veiga við langferðastrætó

teljari

  • 274,648 heimsóknir

dagatal

júlí 2008
S M Þ M F F L
« jún   ágú »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031