vííí

kom öllum bæklingunum 500 á Hamrhlíðinga, svo er að vita hvort ég þarf að halda á 500 diskum eða hvort ég geti pakkað þeim í tösku sem fari í farangur kórsins, kemur í ljós. Þarf allavega ekki að halda á þessari 70 (á að giska) kílóa tösku.

Nú er ég að fara að búa til nokkra diska með messunni minni, ekki kann ég nú við að dreifa henni með öllum diskunum, en nokkra þekki ég aðeins, og vil endilega koma þessu aðeins á framfæri. Verst að hún er ekki komin út, þetta verður hálfgerð sjóræningjaútgáfa. Var að hugsa um að kaupa frekar slatta af usb lyklum, en það er fáránlega miklu dýrara, yfir þúsundkall lykillinn, í stað innan við hundraðkall fyrir disk.

Já og ég er loksins orðinn stoltur eigandi tölvubakpoka, kominn tími á það fyrir langalöngu.

6 Responses to “vííí”


  1. 1 parisardaman 2008-07-17 klukkan 22:10

    Aha, elska tölvubakpokann minn þó ég þori ekki einu sinni að hjóla með hann, svo hrædd um tölvuna mína.
    Enga feimni með diskana, vera frökk, trúðu mér, það er gott.

  2. 2 hildigunnur 2008-07-17 klukkan 22:14

    jájá, málið er bara að það er borgað undir mig þarna út til að kynna íslenska kórtónlist og ég á að sjálfsögðu ekki að nota tækifærið til að troða sjálfri mér að, frekar en öðrum.

    Ég mun sko hjóla með mína, enda er hún gömul og nú þegar með skemmdan skjá :D

  3. 3 beggi dot com 2008-07-17 klukkan 22:18

    Nja, ekki yfir þúsarann. 1 gig fæst á 800 kall hjá computer.is (http://www.computer.is/vorur/2728), 256 meg er hins vegar á 950 kall (http://www.computer.is/vorur/2141). Gætir örugglega fengið þá á hagstæðara verði ef þú kaupir nokkra.

    Ég er ekki viss um ég sé sammála því að það sé fáránlegt að verulega flókinn tæknibúnaður sé eitthvað dýrari en óendanlega ómerkileg plastsskífa með örlitlu áli milli laga.

  4. 4 Jenný 2008-07-17 klukkan 22:25

    Rosalega er að gera hjá þér. Mér líður eins og frosinni kanelbollu.

  5. 5 hildigunnur 2008-07-17 klukkan 22:28

    Beggi, jújú, fáránlega var ekki vel orðað, ég meinti eiginlega bara hrikalega miklu dýrara. En ég var í Tölvulistanum þegar ég spurði, reyndar ekki um eins gíg diska, þeir áttu ekki minni en tveggja gígabæta og hann hélt að hálfs gíg diskar fengjust allavega hvergi. Og ég bara trúði þessu…

    Jenný, slatti, jámm :D

  6. 6 Hafdís 2008-07-18 klukkan 08:52

    Ég var að fá tvo kassa af geisladiskum í hús. Þeir eru væntanlega frá þér :D , ekki satt? Hvenær kemurðu til Köben :) ?


Skildu eftir svar




bland í poka

Graduale nobili

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

More Photos

Nýleg ummæli

parisardaman við Skálholt
hildigunnur við Skálholt
parisardaman við Skálholt
hildigunnur við ffffffffff
vinur við ffffffffff

teljari

  • 248,301 heimsóknir

dagatal

júlí 2008
S M Þ M F F L
« jún   ágú »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031