að blogga, það er þetta með köttinn sem er ekki heima.
Erum að hamast í að klára bæklingana og diskana sem ég mun hafa með mér út á laugardaginn kemur, einn alveg tilbúinn, annar að fara í framleiðslu á næstu mínútum og er að fara að steypa mér í þann þriðja.
En úff, ég hlakka ekki til að dragnast með 600 bæklinga og eitthvað heldur fleiri diska í flug. Sé fram á níðþungar töskur og rándýra yfirvigt (nei, ég þarf ekki að borga hana sjálf). Nú hefði ég þurft að vera á ReykjavíkurLoftbrúrmiða…






kvalifikeraði þessi ferð ekki í loftbrúardæmið???? það finnst mér mjöög undarlegt!
Hildigunnur, þarftu ekki að fara að pústa?
Góða ferð annars.
Útflutningsráð íslenskrar tónlistar borgar miðana – en ekki yfirvigtina
Jenný, ég fæ að pústa eftir næsta miðvikudag, þá kem ég til baka frá Danmörku og fæ frí
Ókei…ég séð þú hefur ekki náð að henda þessu í póst. En þú hringir í mig ef ég get hjálpað, græja fyrir þig borð og stól
. Endilega, ekki hika við að hafa samband ef ég get aðstoðað eitthvað
.
haha, þetta fer sko ekkert í póst héðan, diskarnir eru gerðir í Danmörku, og óþarfi að senda þá hingað heim bara til að ég burðist með þá út
Allt annað dót sem ég fer sjálf með út.
Hringi bókað í þig…
Reyndi í gær að kommenta í gegnum símanetið. Það tókst ekki….
Mér finnst að þú eigir ekki að þurfa að borga yfirviktina. Er ekki hægt að fá styrk fyrir henni? Hvað ertu annars að fera með af tónlist? Eitthvað sem maður kannast við?
kveðja úr sveitinni
ég borga þetta ekkert sjálf, sko, ITM borgar. Slatta af kórlögum, svona sextíu búta, bæði hluta af nótum og tóndæmi. Búin að vera brjáluð vinna í kring um þetta