mikið get ég ekki

beðið eftir að komast til Tékklands, ekki á morgun heldur hinn! Þetta er besta spáin sem ég fann, er að hugsa um að nota hana.

Annars er prógrammið hjá okkur:

Laugardagur: Flogið til Kaupmannahafnar og þaðan til Prag, gefst ekki tími til að fara inn í Köben milli fluga. Sótt á völlinn í Prag og keyrt til Pilzen. Væntanlega fengið sér einhvern góðan bjór.

Sunnudagur: Frí. Eitthvað munum við væntanlega finna okkur að gera.

Mánudagur: Frí fram til klukkan 17:00, þá æfing á verkunum. Verkin eru: 5 fuglar, einn Davíðssálmur, nokkur þjóðlög.

Þriðjudagur: 11:00, samtalsþáttur í tékkneska ríkisútvarpinu (held ég). 13:00, fyrirlestur um tónlist mína í tónlistarháskólanum (glúbb). 20:00, æfing

Miðvikudagur: æfing og tónleikar.

Fimmtudagur: flogið til Kaupmannahafnar. Ekki hugmynd um hvað við ætlum að gera þar, nema væntanlega hitta einhverja vini og kunningja og heimsækja gamlar slóðir. Gist hér.

Föstudagur: sama, pantað borð á Reef N’Beef um kvöldið. Pínu spennandi.

Laugardagur: Væflast um borgina eða eitthvað. Flogið heim um kvöldið.

Og nei, húsið verður EKKI autt, þaddna, ef einhver er að lesa og leita að þannig…

5 Responses to “mikið get ég ekki”


  1. 1 Guðlaug Hestnes 2008-06-19 klukkan 13:34

    Góða ferð til Tékklands og gangi þér vel. Hef samband við þig þegar þú kemur heim, því ekki má ég klikka á skottunum. Kær kveðja.

  2. 2 Þóra Marteins 2008-06-19 klukkan 13:36

    Góða ferð :D

  3. 3 Jenný 2008-06-19 klukkan 20:23

    Noh, þabarasonna. Nóg að sýsla.
    Góða ferð.

  4. 4 hildigunnur 2008-06-19 klukkan 21:00

    Takk takk :)

  5. 5 Veiga 2008-06-19 klukkan 21:10

    Þú ert bara alltaf í útlandinu kona. Góða ferð!


Skildu eftir svar




bland í poka

Graduale nobili

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

More Photos

Nýleg ummæli

hildigunnur við Skálholt
parisardaman við Skálholt
hildigunnur við ffffffffff
vinur við ffffffffff
Þorbjörn við ffffffffff

teljari

  • 248,296 heimsóknir

dagatal

júní 2008
S M Þ M F F L
« maí   júl »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930