nutellaraunir

Hélt fámennt og verulega síðbúið afmælishóf fyrir 16 ára unglinginn, enginn frá tengdafjölskyldunni komst (þau voru hvort sem er búin að gefa afmælisgjöf, múhaha – neiannars, þau eiga inni eitt stykki kaffiboð).

Ákváðum nú samt að gera fullan skammt af kaffibrauði, afmælisbarnið langaði til að hafa vöfflur með Nutella og ís, ekki málið.

Nema hvað.

Nutella fæst ekki í Krónunni, bara Nusco sem okkur finnst ekki nándarnærri eins gott. Steingleymdum að kíkja eftir því í Melabúðinni, þangað sem við fórum eftir Krónuna en væntanlega fæst það nú þar.

Í morgun skyldi staðan leiðrétt, bóndinn hljóp fyrst út í Krambúð, neinei, þar bara Nusco, þá út í 10-11 á Barónsstíg, þar var enn verra ástand, aðeins Euroshopper hnetusúkkulaðismjör.

Góð ráð dýr.

Hringdi í mömmu og pabba og bað þau koma við í búð og kippa með sér krukku. Auðsótt mál. (láðist reyndar að segja þeim að 10-11 hefði þegar verið reynt), þau komu við í nýju fínu Hagkaupsbúðinni í Garðabæ. Ekkert Nutella (hafið þið tekið eftir því, annars, að það er alveg sama hvað Hagkaupsbúðir eru stórar, það fæst ekkert fleira í þeim? Bara lengri rekkar af sömu vörunni). 10-11 í Grímsbæ, sama niðurstaða.

Þau hingað heim, Nutellalaus, ég tók bílinn (gaaah, en gestirnir voru komnir, tæpast tími til að hjóla), út í Nóatún í Nóatúni, hrifsaði krukku af blessaðri vörunni úr hillunni, borgaði, út, gaf sígaunanum með harmónikkuna hundraðkall og heim. Hjúkkitt.

Það eru náttúrlega sjálfsögð mannréttindi að fá Nutella á vöfflurnar sínar, ekki satt?

5 Responses to “nutellaraunir”


  1. 1 Guðlaug Hestnes 2008-06-15 klukkan 21:45

    Mín kæra Hildigunnur, hvað er Nutella? Heimskulega spurt kannski, en ég veit ekki! Kveðja í bæinn.

  2. 2 Fríða 2008-06-15 klukkan 22:26

    Já, hvar værum við stödd ef maður veldi alltaf auðveldustu leiðina :P :)

  3. 3 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 23:50

    Nutella er súkkulaðihnetusmjör ofan á brauð, alveg skelfilega gott. Sjá hér.

    Fríða, talsvert styttra en nú, ójá… :D

  4. 4 eddi 2008-06-16 klukkan 08:32

    haha, fyrr mán ú vera.
    en já, ég hef tekið eftir því að það er farið að vanta mikið af gömlu góðu vörunum í búðir..

  5. 5 Elías Halldór 2008-06-16 klukkan 15:11

    Og já, Nutella er úr heslihnetum og súkkulaði.


Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

teljari

  • 246,584 heimsóknir

dagatal

júní 2008
S M Þ M F F L
« maí   júl »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930