kokkurinn

Finnur gerir stöðugar tilraunir í matargerð, ég gæti trúað drengnum til að verða fusionkokkur. Í kvöld var tilraunin: Brauð með nutella, ostsneiðar ofan á, hitað í örbylgjuofni í örstutta stund, þeyttur rjómi ofan á.

Mesta furða hvað þetta var gott. Ekki hefði ég trúað því að óreyndu.

9 Responses to “kokkurinn”


  1. 1 finnurjons 2008-06-15 klukkan 23:04

    þetta er svo skrítið en samt mjög gott.

  2. 2 Fríða 2008-06-16 klukkan 00:40

    :) Börnin eru ekki búin að læra hvað má og hvað má ekki hvað mat varðar. Sonur minn setti season all á páskaegg.

  3. 3 Svanfríður 2008-06-16 klukkan 01:56

    Einn viðskiptavinur á veitingahúsinu sem ég vann á, setti alltaf tómatsósu út í súpur, skipti þá engu hvort þær hétu, frönsk lauksúpa, kjúklingasúpa með hrísgrjónum og kartöflum eða núðlusúpa. Persónulega vildi ég ekki prófa það, fannst það frekar ógeðslegt.

  4. 4 Hafdís 2008-06-16 klukkan 08:51

    Snilldarbrauð! Ég er viss um að sonur minn yrði hrifinn af því…

  5. 5 vælan 2008-06-16 klukkan 09:10

    haha gæti nokkuð verið að hann sé eitthvað skyldur henni Ragnheiði Dóru? Nýlegar tilraunir eru t.d. brauð með eggjum og marmelaði og brauð með kæfu og eggjum.. þarf ekki að taka það fram að móðirin smakkaði EKKI á þessum kræsingum ;)

  6. 6 baun 2008-06-16 klukkan 10:27

    hmmm, búin að máta þetta í huganum á tungunni og held að þetta sé alls ekki slæmt, svolítill ostakökufílingur bara:)

  7. 7 hildigunnur 2008-06-16 klukkan 11:04

    Jú, kannski eru þau örlítið skyld, frændsystkinin ;) Kæfa og egg, lifrarkæfa eða kindakæfa?

    baun, já, eins og ég sagði, þetta var alveg merkilega gott. Hafdís, leyfðu honum að prófa, bara, má sleppa rjómanum… Svanfríður, oj, tómatsósa út á allt, nei takk! Og Fríða, meira að segja Finnur hryllti sig yfir seasonall á páskaeggið :D

  8. 8 vælan 2008-06-16 klukkan 16:30

    Lifrar.. bleh.. viðbjóður ;)

  9. 9 hildigunnur 2008-06-16 klukkan 18:51

    jakk, eins og þetta er nú gott sitt í hvoru lagi! Ég get hins vegar alveg ímyndað mér að kindakæfa og egg passi allt í lagi saman.


Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

Nýleg ummæli

Svanfríður við hljóðmengun
baun við
Meinhornid við hljóðmengun
hildigunnur við
hildigunnur við hljóðmengun

teljari

  • 247,864 heimsóknir

dagatal

júní 2008
S M Þ M F F L
« maí   júl »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930