sko til

nú get ég bloggað beint frá Flickrinu mínu, væntanlega hefur það verið hægt í svolítinn tíma. Var alltaf bara með gömlu blogspotadressuna mína, wordpressið virkaði illa eða ekki, en núna fínt. Látum okkur prófa…

17 Responses to “sko til”


  1. 1 Kalli 2008-06-15 klukkan 00:43

    Ég hef aldrei prófað þennan fídus á Flickr. MarsEdit integrerar Flickr svo helvíti vel inn í WordPress. Tumblr bookmarklettið er fínt og Flickr styður hvort eð er ekki Tumblr.

    Annars finnst mér að Flickr eigi að hafa sérstaka bloggstærð á myndunum sem væri þá 400 eða 450 punktar á breidd. Fá blogg sem nota þá breidd á content dálknum að staðaldri. Mitt gerir það samt og ég þurfti ekki einu sinni að breyta þemanum :D

  2. 2 Kalli 2008-06-15 klukkan 00:44

    Erm… hvort ætli gravatar hafi verið bundið við lénið eða póstfangið mitt?

  3. 3 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 00:46

    póstfangið, það er vaninn, held ég.

    Maður getur annars valið um myndastærðina í Flickr, fjórar stærðir. Sú stærsta (sem ég nota, vonlaust annað þegar ég blogga bröndurum) er samt bara þetta pííínulítið of stór…

  4. 4 Kalli 2008-06-15 klukkan 01:31

    Medium er oftast of stór, nema maður hafi 500 punkta content column, og small er, að mig minnir, 240 punkta sem er allt of lítið nema fellt inn í texta.

  5. 5 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 10:03

    nei, ég meina reyndar ekki þannig, þetta eru ekki venjulegu Flickr stærðirnar. Nokkrar stærðir til að fella inn í textann, stillanlegt þar sem maður setur inn bloggsíðurnar sínar.

    Reyndar koma myndirnar bara fínt út, það er eiginlega bara þegar ég pósta myndasögum sem klippist aðeins utan af. Held að wordpress.com stilli stærðina af fyrir mann.

  6. 6 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 10:53

    humm, nei, ég sé núna að það klippist aðeins af þessari líka :(

  7. 7 Kalli 2008-06-15 klukkan 11:52

    Býr Flickr til nýja mynd eða lætur þig fá HTML kóða sem breytir birtingarstærð? Þetta skiptir öllu máli því ég held að bara Safari, eða vafrar sem nota WebKit, resize-i myndir svo vel sé. Í öðrum vöfrum verða myndirnar grófar og ljótar.

    Eða… þetta virðist fínt í Firefox 3 sýnist mér en á eldri Firefox og IE á Windows varð t.d. myndin í þessari færslu mjög ljót: http://hofteigur.net/?p=718

    Mér finnst nefnilega pointless að fella mynd sem ég vil grobba mig af í bloggpóst ef hún verður svo forljót í póstinum :)

  8. 8 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 12:01

    Ég er bara ekki alveg viss, held að Flickrið búi myndina til. Ég mun nota stærstu týpuna sem þeir bjóða upp á sem bloggvæna, hinar eru bara of litlar, finnst mér.

  9. 9 Kalli 2008-06-15 klukkan 13:57

    Það er reyndar mjög einfalt að sjá þetta á HTML-inu. Ég prófa kannski að blogga í gegnum Flickr þegar ég set mynd á bloggið mitt en það er bara svo andskoti gott að nota MarsEdit fyrir það.

  10. 10 Kalli 2008-06-15 klukkan 13:59

    Reyndar fæ ég ekkert val um myndstærð þegar ég vel að blogga mynd hjá mér. Fæ bara að slá inn hvaða texta ég vil hafa með. Þá líkar mér betur við að gera þetta eins og með MarsEdit þar sem ég vel myndina og MarsEdit setur HTML kóða til að birta hana inn í textann hjá mér. Þannig get ég editað hann eftir hentugleikum.

  11. 11 Kalli 2008-06-15 klukkan 14:02

    Hehe… einu sinni enn? :p

    Ég held ég hafi fattað þetta. Gallinn er að layout er stillt í account settings en ekki þegar maður er að blogga myndina. Stærðirnar sem þeir bjóða upp á þar eru bara venjulegu Flickr stærðirnar og því ekki skrítið að stærsta sem er í boði passi ekki á bloggið þitt því það er 500 punkta mynd eða það sem Flickr kallar medium. Þarna vantar 400-450 punkta valkost.

    Eða þá að þú látir content dálkinn þinn verða 500 punkta.

  12. 12 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 14:20

    ha, eru til svona margar litlar stærðir? Voru ekki alveg fjórar þarna minni en medium? Eða var það bara uppsetningin? (nenni ekki að fara inn og skoða núna)

    Alveg sammála með 400-450 punkta valkostinn. Og það mætti vel mega velja í hvert skipti sem maður bloggar mynd, í stað þess að þurfa að byrja á því að stilla í account ef maður vill ekki alltaf hafa sömu stærð. Ég verð að hafa stærstu fyrir brandarana, annars er ekki séns að það sé hægt að lesa, en stundum myndi maður væntanlega vilja hafa minni mynd sem er felld inn í texta.

  13. 13 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 15:58

    já, ég sé þetta núna, þetta er medium, small og thumbnail, auðvitað. Og medium fer örlítið útfyrir. Hmm, kannski kíki ég á MarsEdit ef ég nenni ;)

    Er annars afleit í html, þannig að ég veit ekki hvort ég nenni…

  14. 14 Kalli 2008-06-15 klukkan 23:40

    Blessuð vertu, HTML er til að smíða vefsíður með. Maður á ekki að þurfa að fikta í HTML þegar maður bloggar :)

    Myndir eru reyndar undantekning en MarsEdit injectar kóðanum til að birta Flickrmyndir með blogginu fyrir mann. Það sem ég geri til að losna við HTML er að nota plugin fyrir Markdown. Með því getur maður skrifað sniðinn texta sem er mannlæsilegur.

    MarsEdit getur skilið Markdown svo þetta smellur allt. Svo má reyndar vera að þú notir visual editorinn í WordPress en ég hef aldrei gert það. Það er miklu þægilegra að nota Markdown :)

    Ég tek sérstaklega eftir þessu þegar ég tumblelogga því Tumblr er default með visual web editor og ég neyðist til að nota hann nema ég opni allt stöffið í HTML edit glugga. Bæði slæmir kostir þó ég myndi sjálfur frekar vilja nota HTML en visual editor.

  15. 15 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 23:47

    nei nei, ég nota ekki visual editor, þoli hann ekki :D

    En ertu á safari, eða firefox, er þetta plugin til fyrir safari (ég get ekki notað firefox, eins og ég hef oft talað um)

    Reyndar langar mig til að kunna á html, almennilega. Og unix, til að ráða við að halda heimasíðunni minni í lagi (búin að vera niðri í 2-3 vikur) :’(

  16. 16 Kalli 2008-06-16 klukkan 10:53

    MarsEdit er hefðbundið desktop forrit. Í staðinn fyrir að logga þig inn á vefsíðina þína ræsirðu ritil sem sér um samskipti við WordPress kerfið.

  17. 17 hildigunnur 2008-06-16 klukkan 11:00

    kay, skoða þetta :)


Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

Nýleg ummæli

Svanfríður við hljóðmengun
baun við
Meinhornid við hljóðmengun
hildigunnur við
hildigunnur við hljóðmengun

teljari

  • 247,864 heimsóknir

dagatal

júní 2008
S M Þ M F F L
« maí   júl »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930