hjólin í statífinu



hjólin í statífinu, originally uploaded by hildigunnur.

Ekki fyrr búin að kaupa hjólastatíf en hjólinu hans Finns var stolið úr því (ólæstu, þýðir víst lítið að fara í tryggingarnar, því miður).

Reyndum að láta hann hjóla á Fífu hjóli áðan en það er svona 4 tommum of stórt, er ég ansi hrædd um. Spurning um að hann fari á hlaupahjólinu á sundnámskeiðið – verði ekki búið að stela því líka…

9 Responses to “hjólin í statífinu”


  1. 1 ella 2008-06-15 klukkan 05:47

    Verst að stóra hjólauuppboðið hjá löggunni er víst búið. Ja, þar voru víst 250 hjól sem fundust hist og her og enginn spurði um, kannski reynandi að spyrja eftir hjóli stráklings þar þegar stelandinn er orðinn leiður á því?

  2. 2 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 10:00

    jámm, Jón Lárus fékk sitt hjól einmitt þar, fyrir nokkrum árum. Ég á eftir að fara og kæra þetta, jafnvel þó að ég ætli ekkert að hjóla í tryggingarnar, hjólið varla sjálfsábyrgðarinnar virði :(

  3. 4 Elías 2008-06-15 klukkan 12:10

    Er þetta ProStyle Cougar hjólið sem sést þarna lengst til vinstri? Það hefur farið á 8000-16000 ISK, eftir því á hvaða tíma árs það er keypt.

  4. 5 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 12:19

    já, einmitt. Spurning hvort það sé farið að lækka í verði núna, örlítið liðið á sumar. Ég tími alveg að kaupa hjól á 8000 kall handa honum, en er ekki til í 16000 kall fyrir hjól sem er að verða of lítið fyrir hann. Hann þarf líka að fara að fá gírahjól, eiginlega.

  5. 6 Elías 2008-06-15 klukkan 23:17

    Er það ekki 6 gíra hjól?

  6. 7 hildigunnur 2008-06-15 klukkan 23:42

    nei, eins gírs :>

  7. 8 Elías 2008-06-16 klukkan 07:56

    Ah, OK, þá er það áreiðanlega ódýrara.

  8. 9 hildigunnur 2008-06-16 klukkan 17:14

    Ódýrasta tuttugu tommu krakkahjólið í Hagkaupum núna er á annað hvort 13 þúsundkall eða 17 (mismunur á verði á hjólinu sjálfu og á spjaldi við). Fulldýrt.


Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

teljari

  • 246,584 heimsóknir

dagatal

júní 2008
S M Þ M F F L
« maí   júl »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930