við Jón Lárus förum yfirleitt einu sinni í mánuði út að borða í hádeginu, eins og ég hef örugglega sagt frá áður, hér. Ætluðum reyndar að sleppa því í þetta skiptið, þar sem við erum jú að fara til Tékklands og svo Kaupmannahafnar eftir rúma viku og munum væntanlega borða eitthvað úti þar.
Nema hvað, inn um tölvupóstlúguna datt e-kortatilboð um tvo fyrir einn á Víni og skel. Við höfum lengi ætlað þangað, reyndar reynt tvisvar, í fyrra skiptið var ekki opið en síðara átti greinilega að vera opið, búið að dúka borð og leggja á, kveikja á kertum og allt – en harðlæst og enginn svaraði banki.
Núna gekk þetta samt fínt, við vorum þarna rétt fyrir klukkan 12, fengum fínt borð og ágætis þjónustu, pöntuðum ekki kjúkling og franskar (enda ekki í boði) heldur krækling og franskar. Það fengum við hins vegar alls ekki. Skelfisksúpa kom á borðið. Ljómandi góð skelfisksúpa og auðvitað borðuðum við hana bara, en létum þó vita að þetta hefði ekki alveg verið pöntunin. Væntanlega misskildi þjónninn okkur, enda talaði hún afskaplega takmarkaða íslensku.
Aldrei vantaði vatn eða brauð á borðið, vel var fylgst með okkur.
Þurftum bara að borga fyrir það sem við pöntuðum, sjálfsagt mál og auðsótt.
Ég get vel mælt með Víni og skel, þjónustan ljómandi fín og maturinn góður. En gerið ykkur skýrt skiljanleg ef þið viljið fá það sem þið pöntuðuð…






Vildi bara láta þig vita að myndbandið er komið á YouTube. Það er hér: http://www.youtube.com/watch?v=1JemJlcu4SA
Bestu kveðjur,
Er búin að margreyna að skrifa athugasemdir hjá þér en þær birtast aldrei. Kannski sama vandamál og var hjá Gísla Málbeins.
Prófa nú gmail netfangið…
Það virkar greinilega
Takk.
Hey, kræklingur og franskar? Namm! Ég reikna ekki með að ég geti fengið geuze að drekka með líka? Þá væri það fullkomið