ansi hreint margt sem ég þurfti að gera í dag, semsagt áður en ég fer út í fyrramálið. Klára parta og partítúr af einni umskrift (búið), senda partana síðan í gær til tékkneska hópsins (búið), velja þjóðlög til að senda sama hópi (ekki búið), funda í sambandi við demódisk sem verið er að gera fyrir alþjóðlega kórastefnu í Danmörku í sumar (búið) senda fullt af póstum í sambandi við það (í vinnslu), ná í einn kórstjóra (finnst ekki), syngja við eina jarðarför (búið) fara með krakkana á æfingu fyrir skólaslit og skólaslitin sjálf (búið), reyna að ná í fulltrúa prófanefndar til að skila af mér samræmdu prófunum í tónfræði sem ég er búin að fara yfir fyrir talsverðu síðan (gengur ekkert).
Pakka, hvaþa?






Það gustar af þér:)
góða ferð í fyrramálið og skilaðu kveðju til Þórdísar Sævars.
Gangi ykkur vel og pústaðu í flugvélinni. Þórdís Sævars má alveg fá koss frá mér líka.
Takk takk mæðgur, og ég skal alveg knúsa Þórdísi frá ykkur, en sú ferð er reyndar ekki fyrr en eftir tæpar tvær vikur