ferskt esdragon einhvers staðar í dag? Eru ekki sólarhringsbúðirnar einhverjar opnar? Og ætli sé mikil bjartsýni að trúa að þær séu með mikið úrval ferskra kryddjurta…?
Skiptum nefnilega um hest í miðri á (Fífa skildi ekkert í því hvað við værum að rugla með að eyða nautasteikinni sem við keyptum í boeuf á la bourguignonne og heimtaði roastbeef)
Kemur í ljós.






10-11 er opið og þeir eru yfirleitt, allavega mín búð, með einhverjar kryddjurtir.
Ég kaupi orðið alltaf kryddjurtirnar í frystiumbúðum, helvíti fínt. Alltaf til ferskur estragon, persil og basilikka á heimilinu.
Jamm, við fórum í tvær tíuellefur (Barónsstíg og Lágmúla) en hvorug búðin átti esdragon. Ætlum að prófa að gera þetta með þurrkuðu, örugglega ekki alveg eins gott en gæti nú vel verið ætt, samt
Frosið, jámm, líka gáfulegt að frysta afgangana þegar maður kaupir. Alltaf allt of mikið í þessum pökkum…
Eigum reyndar eiginlega alltaf basil, timjan og rósmarín, stundum myntu, í pottum og steinselju úti í garði stóran part af árinu, en esdragon höfum við ekki farið út í að rækta.
Svo prófuðum við að gera neyðar bearnaise sósu með þurrkuðu fáfnisgrasi. Bara ekki svo slæmt. Lítill munur á bragðinu en leit út eins og hollandaise sósa.
hehe, jámm, en hún var alveg góð. Má greinilega vel notast við þurrkað.