morgunmaturinn

við Bryndís vinkona mín og samkennari í Suzukiskólanum hittumst sirka einu sinni í mánuði og fáum okkur eitthvað að borða. Nú síðan í haust passa lausu hádegin okkar ekki sérlega vel saman, þannig að við höfum farið og fengið okkur morgunmat.

Oftast á Gráa köttinn, sem klikkar ekki.

Nema hvað, í morgun ætluðum við að prófa eitthvað annað, hún var svolítið tímabundin þannig að við röltum af stað niður í bæ klukkan hálfníu. Stefndum á Tíu dropa, neinei, opnar klukkan 9. Fullseint. Kíktum inn á Hótel Frón, þar var hægt að fá að kaupa sér morgunmat en virkaði hálfklénn, brauð og skinka og safi og súrmjólk, einhvern veginn langaði okkur ekki í það. Te og kaffi í MM húsinu heldur ekki opið fyrr en níu. Niður í Bankastræti fórum við, Kaffitár var opið en allt troðfullt, nenntum nú eiginlega ekki að bíða eftir plássi.

Út aftur. Vorum að spá í hvort við ættum að fara á 101, en duttum í staðinn inn á Prikið.

Þangað fer ég ekki aftur á mánudagsmorgni. Svo sem skemmtileg stemning, einn sat þarna með hundinn sinn, ósköp vel upp alinn (hundurinn það er að segja, veit ekki um manninn). Pöntuðum okkur, ég french toast, hún eggjaköku, báðar appelsínusafa.

Enginn appelsínusafi til. Ókei, eplasafa í staðinn, þá.

Engin egg til.

Þetta með eggin var verra, þar sem það útilokaði svona 70% morgunmatarseðilsins. Enduðum á að fá okkur rúnnstykki og ristað brauð. Svipað og við vorum búnar að fúlsa við á Hótel Fróni.

Ég skil reyndar ekki alveg hvers vegna þau gátu ekki hlaupið út í Vísi, í hálfrar mínútu fjarlægð og keypt Trópífernu og einn eggjabakka. Þá hefði maður kannski verið til í að koma aftur.

En þjónustufólkið var annars bara mjög lipurt og baðst afsökunar á hvað þetta var aumt. Ekki þeim að kenna.

Á leiðinni uppeftir aftur komum við svo við á Mokka og fengum okkur heitt súkkulaði. Það náttúrlega klikkar aldrei…

9 Responses to “morgunmaturinn”


  1. 1 hildigunnur 2008-03-3 klukkan 12:02

    hvernig í ósköpunum stendur á því að ég fæ avatarmyndina af honum syni mínum þegar ég kommenta án þess að vera skráð inn? Ekki hjá kommentunum sjálfum, heldur hér til hliðar, undir Nýleg ummæli…

  2. 2 Svanfríður 2008-03-3 klukkan 14:13

    Mér finnst líka allt í lagi að fleiri staðir opni fyrr en klukkan 9. Er kannski ekki markaður fyrir það?

  3. 3 hildigunnur 2008-03-3 klukkan 14:28

    Tja, miðað við hvað var troðfullt á Kaffitári, jú, þá sýnist mér nú alveg vera markaður, allavega fyrir snyrtilega og góða staði…

    Sakna reyndar Súfistans ofan úr MM húsi, nýja kaffihúsið þar er ekki nándar nærri eins huggulegt. Kalt og mínímalískt, því miður.

  4. 4 Svanfríður 2008-03-3 klukkan 15:32

    Þetta er einmitt eitt af því sem mér þykir gott við að búa hér, staðirnir opna mjög snemma, flestir upp úr 05 enda þarf fólk að leggja snemma í hann til að ná til vinnu klukkan 8. En þó mér líki opnunartímarnir þá þoli ég ekki lokunartímana því hér er voðalega lítið um kaffihús en þá meina ég í úthverfunum. Þetta eru flest allt veitingastaðir og svo barir og á virkum dögum er búið að loka upp úr 22 og í síðasta lagi klukkan 23. Kannski maður ætti að opna lítið kósý kaffihús og selja íslenskt bakkelsi með’ðí.

  5. 5 vælan 2008-03-3 klukkan 16:11

    te og kaffi er samt mun ódýrara en súfistinn.. það er nú bara skandall hvað kostar þar!

    mér finnst líka betri matur og kaffimeðlæti hjá t&k þannig að ég er bara sátt við þessi skipti :)

  6. 6 hildigunnur 2008-03-3 klukkan 17:22

    væla, já, ég veit það var ástæðan fyrir skiptunum. En hvers vegna þarf þetta að vera svona kuldalegt, þó það sé Te og kaffi? Alveg er ég viss um að það er ekki vegna þess að það sé ódýrara…

  7. 7 hildigunnur 2008-03-3 klukkan 17:23

    og Svanfríður, hver veit nema þú yrðir forrík af að selja íslenskar pönnukökur, upprúllaðar eða með rjóma, lagtertu og kleinur. Og hafa svo opið svolítið frameftir (ef ástæðan fyrir opnunartímanum er þá ekki einhver reglugerð)

  8. 8 vælan 2008-03-3 klukkan 17:38

    neibb þeir eru bara fremur kuldalegir.. vilja líklegast hafa eitthvað heildarlúkk.. mætti alveg vera hlýlegra, sammála því.

  9. 9 Hafdís 2008-03-6 klukkan 12:13

    O, það er svo leiðinlegt að flækjast svona um að leita að einhverju og finna það ekki :( . Pirró!


Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

teljari

  • 246,584 heimsóknir

dagatal