ég held að Freyja sé búin að veiða pestina. Reyndar ekkert kastað upp ennþá, en henni var illt í maganum í kvöld og vildi ekki einu sinni bollu (Fífa bakaði helling af vatnsdeigsbollum í dag).
Reyndar kastaði Finnur upp í morgun, í gær var hann með nærri 40° hita og ljótan hósta, hóstinn hefur snarminnkað, enginn hiti í dag, smá uppköst í morgun en ekki einu sinni ógleði í framhaldinu. Spes. Vonandi sleppur hann svona vel og er búinn með þetta.
Hann hefur reyndar tröllatrú á því að konfektmoli lagi magapest, virkaði bæði núna og þegar hann fékk slíka pest um daginn. Kannski hefur hann uppgötvað lækninguna…






ætla rétt að vona að konfektmoli sé lækning við pest, jafnvel öllum pestum:)
batakveðjur í bæinn!
Æ ,,litlu” greyin! Vonandi batnar þeim flótt. En mikið líst mér vel á lækingaraðferðir drengsins!
…fljótt…