Jaæja

þá er stefnt á kennslu á morgun. Fékk ómetanlega hjálp frá foreldrunum í dag, mamma kenndi fyrir mig, Suzukikrakkarnir búnir að missa 3 vikur, og svo lánuðu þau mér hitapoka sem er búinn að vera í nær stanslausri notkun síðan.

Listaháskólinn á morgun, ætti að vera síðasti þriðjudagurinn þeirra, ég verð að fá svar í fyrramálið hvort ég fái heimild til að bæta við einum degi. Svolítið vont í 10 vikna kúrsum að missa úr tvo.

Sagan endurtekur sig, akkúrat svona var þetta hér fyrir tveimur árum (eins og lesa má á síðunni ef einhver nennir að fletta).

Hlakka allavega allverulega til að komast í kennsluna aftur. Skelfilega leiðinlegt að vera lasinn heima. Jamm. Best að fara að sofa, langur dagur á morgun. Bannað að ofreyna sig.

0 Responses to “Jaæja”



  1. No Comments Yet

Skildu eftir svar




bland í poka

loftið

brunablettur

ónýtur ljósbúnaður

hótelið í Prag

arfi?

boundandgagged

More Photos

teljari

  • 246,584 heimsóknir

dagatal

nóvember 2007
S M Þ M F F L
« okt   des »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
252627282930